Refund policy

Skila- og endurgreiðsluskilmálar

Skilaréttur

Skilafrestur er 4 vikur (28 dagar) frá því að vara er afhent.

Til að vara fáist endurgreidd þarf hún að vera ónotuð, í sama ástandi og við afhendingu og í upprunalegum umbúðum eftir því sem við á. Framvísa þarf kvittun eða annarri staðfestingu á kaupum.

Til að óska eftir skilum skal hafa samband við okkur á goodlook@goodlook.is áður en vara er send til baka.

Skilavörur sendist til:

GoodLook
Laufvangur 4
220 Hafnarfjörður
Ísland

Vörur sem eru sendar til baka án þess að haft hafi verið samband við okkur fyrirfram kunna að vera ekki teknar til afgreiðslu.

Sendingarkostnaður vegna skila

Kaupandi ber kostnað við að senda vöru til baka þegar um venjuleg skil er að ræða, nema annað sé sérstaklega ákveðið.

Ef vara reynist gölluð, skemmd við afhendingu eða röng vara hefur verið send, ber GoodLook eðlilegan kostnað vegna skila eða endursendingar eftir því sem við á.

Skemmdar eða gallaðar vörur

Vinsamlegast skoðaðu pöntunina við móttöku og hafðu samband við okkur eins fljótt og auðið er ef vara er gölluð eða skemmd eða ef röng vara hefur verið afhent.

Við metum hvert tilvik og sjáum til þess að málið sé leyst í samræmi við gildandi lög og skilmála.

Vörur sem ekki er hægt að skila

Af hreinlætis- og öryggisástæðum kann réttur til skila að falla niður þegar innsigli eða umbúðir á snyrti-, hár- eða persónulegum umhirðuvörum hafa verið rofnar, ef varan er þess eðlis að ekki er hægt að skila henni af heilbrigðis- eða hreinlætisástæðum.

Sérpantaðar eða sérsniðnar vörur kunna jafnframt að vera undanþegnar skilarétti samkvæmt gildandi lögum.

Þessar takmarkanir skerða ekki rétt viðskiptavinar vegna gallaðrar eða rangrar vöru.

Tilboðsvörur

Tilboðsvörum fæst ekki skilað nema lögbundinn réttur kaupanda kveði á um annað.

Gölluð vara telst ekki undanþegin kvörtunar- eða reklamationsrétti eingöngu vegna þess að hún var keypt á tilboði.

Vöruskipti

Ef þú vilt skipta vöru er einfaldast að hafa samband við okkur á goodlook@goodlook.is.

Eftir að skil hafa verið samþykkt getur þú lagt inn nýja pöntun fyrir þá vöru sem þú vilt fá í staðinn.

Réttur til að falla frá kaupum

Þegar lög um neytendasamninga eiga við hefur neytandi almennt 14 daga rétt til að falla frá kaupum sem gerð eru í fjarsölu, svo sem í netverslun, án þess að tilgreina ástæðu, með þeim undantekningum sem lög kveða á um.

Fjögurra vikna skilafrestur GoodLook kemur til viðbótar þeim lágmarksréttindum sem viðskiptavinur kann að eiga samkvæmt lögum og takmarkar ekki lögbundinn rétt neytenda.

Endurgreiðslur

Þegar skilavara hefur borist okkur verður hún yfirfarin og við látum þig vita hvort skilyrði fyrir endurgreiðslu séu uppfyllt.

Sé endurgreiðsla samþykkt verður hún framkvæmd með sama greiðslumáta og notaður var við kaupin, eftir því sem unnt er.

Vinnslutími banka og greiðsluþjónustuaðila getur verið mismunandi og því getur tekið nokkra virka daga þar til endurgreiðslan birtist á reikningi kaupanda.

Ef þú hefur spurningar um skil eða endurgreiðslu getur þú haft samband við okkur á goodlook@goodlook.is.

Tilboðsvörur

Tilboðsvörum fæst ekki skilað eða skipt.

Þetta á þó ekki við ef vara er gölluð eða röng vara hefur verið afhent og skerðir ekki önnur lögbundin réttindi kaupanda.